Utanríkismálanefnd Alþingis ræðir í dag stöðuna í alþjóðamálum eftir árás Bandaríkjanna á Venesúela og brottnám Nicolas Maduros. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra óskaði eftir fundinum. „Ísland er smáríki. Allt okkar öryggi, fullveldi og rödd í alþjóðasamfélaginu byggir á því að alþjóðalög og stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna séu virt - alltaf, óháð því hvaða ríki á í hlut. Ekki síst þegar um stórveldi er að ræða,“ sagði Þorgerður Katrín á samfélagsmiðlum í gær.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði í gærkvöld að Ísland standi þétt með Grænlendingum eftir frekari fréttir af ásælni Bandaríkjamanna í Grænland.Alþingishúsið.RÚV / Ragnar Visage