Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Að minnsta kosti 30 drepnir í árás á þorp í Nígeríu

Rúmlega 30 manns voru drepnir í norðurhluta Nígeríu á sunnudag þegar vopnaðir menn gerðu árás á þorpið Kasuwan Daji í Níger-fylki. Árásarmennirnir brenndu jafnframt heimili og létu greipar sópa um verslanir í þorpinu. Að sögn lögreglu var sumum þorpsbúum rænt, þar á meðal börnum.„Rúmlega 30 fórnarlömb glötuðu lífi sínu í árásinni og sumum var líka rænt,“ sagði Wasiu Abiodun, talsmaður lögreglunnar. „Aðgerðir eru hafnar til að bjarga þeim sem rænt var.“Talið er að sömu árásarmenn hafi gert árásir á nágrannaþorpin Agwarra og Borgu frá því á föstudaginn. Árásum stigamanna og hryðjuverkamanna hefur fjölgað í Nígeríu undanfarin ár og algengt er að þeir haldi fólki gegn lausnargjaldi. Varnarmálaráðherrann Badaru Abubakar sagði af sér í desember vegna fjölda mannrána.
Að minnsta kosti 30 drepnir í árás á þorp í Nígeríu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta