Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hvatti Bandaríkin í dag til að hætta að „ógna sögulegum bandamanni sínum“ í kjölfar yfirlýsinga Donalds Trumps forseta um að hann „þyrfti algjörlega“ á Grænlandi að halda. „Ég verð að segja þetta mjög skýrt við Bandaríkin: það er algerlega fáránlegt að segja að Bandaríkin eigi að taka yfir stjórn á Grænlandi,“ sagði danski leiðtoginn í yfirlýsingu,...