Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Snjókoma í kortunum

Hægviðri verður á landinu í dag og á morgun, en þó þykknar upp á sunnudeginum og búast má við snjókomu eða éljum um norðanvert land á mánudag, einkum norðaustanlands.Frost verður á biliu eitt til tíu stig, kaldast inn til landsins, en dregur heldur úr frosti með deginum og hlánar sums staðar við norður- og vesturströndina.Seint á þriðjudag nálgast lægðardrag landið og þar með hverfur það hæðasvæði sem ríkt hefur yfir landinu síðustu daga á brott og við fáum yfir landið heldur kaldara loft en við höfum verið í.Á miðvikudag ganga skil inn á sunnanvert landið og útlit er fyrir hvassa vindstrengi og snjókomu þar. Annars hægari vindur og dálítil él eða snjókoma í öðrum landshlutum, einkum á Austurlandi.
Snjókoma í kortunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta