Samstöðu- og þróunarflokkurinn (USDP), stjórnmálaflokkur sem nýtur stuðnings mjanmarska hersins, er með afgerandi forystu í fyrstu opinberu tölum sem birtar hafa verið í fyrsta áfanga þingkosninga í Mjanmar. Flokkurinn hefur unnið 90 prósent þingsætanna sem búið er að úthluta.Þingkosningar fóru síðast fram í Mjanmar árið 2020, en þá vann Lýðræðisfylkingin (NLD), flokkur Nóbelsverðlaunahafans Aung San Suu Kyi, afgerandi sigur á móti Samstöðu- og þróunarflokknum. Herinn neitaði hins vegar að viðurkenna niðurstöðu kosninganna og lét fangelsa Aung San Suu Kyi, sem hafði farið með völd í Mjanmar frá árinu 2016. Herforingjastjórn hefur síðan þá farið með stjórn í landinu og hefur átt í vök að verjast vegna uppreisnarhreyfinga sem hafa lagt undir sig stóra hluta Mjanmar. Herinn hefur snúið vörn í