Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Drekanum lokað í Þorlákshöfn

Stigahúsið upp í rennibrautina, sem nefnist Drekinn, er tólf metra hátt og kostnaður við hana nam um hundrað og fimmtíu milljónum. Rennibrautin var opnuð 20. desember.Í Facebook-hópi íbúa Þorlákshafnar og í Ölfusi hafa skapast umræður vegna fjölda slysa sem hafa orðið í rennibrautinni. Íbúar lýsa meðal annars meiðslum í baki og mögulegum heilahristingi.Í rennibrautinni taka sundgestir nokkrar beygjur áður en þeir koma inn í keilu þar sem farið er í nokkra hringi áður en ferðinni lýkur með því að sturtast niður um endaop. Keilan er hallandi svo að gestir fái meiri upplifun af hringsnúningnum inni í henni.Rennibrautinni hefur verið lokað og hollenskir framleiðendur hennar skoða mögulegar ástæður slysanna.
Drekanum lokað í Þorlákshöfn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta