Hitastig mældist 19,8 stig á Seyðisfirði um klukkan ellefu á aðfangadagskvöld. Með þessum hita er fallið Íslandsmet í hita í desembermánuði. Einnig mældist hiti 19,7 stig að Bakkagerði á Borgarfirði eystra.Fyrra met var sett 2. desember 2019 þegar hiti mældist stig í Kvískerjum í Öræfum.„Þetta eru lygileg hlýindi,“ skrifaði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í færslu á Facebook-síðu sinni. „Önnur stöð á Seyðisfirði, norðan við fjarðarbotninn í Vestdal hefur fylgt hinni lengst af í kvöld og mælt hæst 19,4 stig. Það er engin augljós ástæða til þess að rengja þessar mælingar.“„En jólanóttin er enn ung eins og sagt er, og ekki útlilokað að hitinn gæti átt eftir að fara enn hærra fyrir austan í þessu mjög svo hlýja lofti sem nú flæðir yfir landið.“Birgir Örn Höskuldsson, vaktaveðurfræðingur hj