Söfnun hefur verið hleypt af stokkunum til að hjálpa aðstandendum stúlku sem lést í bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudaginn. Greint var frá því á sunnudag að tveir Íslendingar, unglingsstúlka og kona á sjötugsaldri, hefðu látist í slysinu og einn til viðbótar slasast alvarlega. Íslendingarnir voru staddir í landinu til að vitja íslensks drengs sem er þar í fíknimeðferð.Ingibjörg Einarsdóttir, vinkona Maríu Sifjar Ericsdóttur, sem missti dóttur sína í slysinu, stendur fyrir söfnuninni. „María fór til Suður-Afríku á föstudag með fjölskyldu sinni til að færa syninum þessar hræðilegu fréttir og sækja látna dóttur sína,“ skrifar Ingibjörg í færslu á Facebook-síðu sinni. „Faðir drengsins liggur enn þungt haldinn á spítala og þarf líklega langa endurhæfingu lifi hann af. Amma drengsins lést einni