Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjögur vilja verða ríkislögreglustjóri

Alls bárust fjórar umsóknir um embætti ríkislögreglustjóra sem auglýst var þann 3. desember síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út þann 18. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, skipar í embættið þegar nefnd sem falið verður að meta hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Skipað er í embættið til fimm ára í senn.Sigríður Björk Guðjónsdóttir lét af embætti ríkislögreglustjóra í síðasta mánuði. Hún sagði af sér eftir tveggja vikna umræðu um fjármál embættis hennar. Spegillinn greindi frá því að eitt fyrirtæki með einn starfsmann hefði fengið um 160 milljónir greiddar fyrir ráðgjöf og verkefni á fimm árum.
Fjögur vilja verða ríkislögreglustjóri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta