Lögreglan telur eðlilegt að heilbrigðisstarfsfólk tilkynni til lögreglu ef sjúklingur hefur leitað endurtekið til sjúkrastofnana með áverka af völdum ofbeldis. Hins vegar er skiljanlegt að heilbrigðisstarfsfólk vilji að lög um þagnarskyldu séu skýrð nánar. Þetta segir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Formaður Læknafélagsins sagðist í gær vilja rýmri heimild til að tilkynna ofbeldismál. Var það eftir að læknar sögðu að þeir hefðu ekki mátt tilkynna langvarandi og gróft ofbeldi sem ung kona beitti foreldra sína því þeir hefðu ekki viljað það. Konan var í vikunni dæmd fyrir að verða föður sínum að bana.Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks gildir nema lög bjóði annað eða rökstudd ástæða sé til þess að rjúfa hana vegna brýnnar nauðsynjar.„Við mynd