Texti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lét setja upp við myndir af forsetum Bandaríkjanna sem hanga í svokölluðum frægðargangi í Hvíta húsinu hefur vakið athygli. Pólitískir andstæðingar Trumps eru smánaðir á meðan hann sjálfur er hylltur.Trump kynnti nýja frægðarganginn í haust. Hann er í vesturálmu Hvíta hússins, þar hanga myndir af forsetum Bandaríkjanna og nú hefur upplýsingaskiltum verið bætt við þar sem lesa má um forsetana. Að sögn Karoline Leavitt, talskonu Hvíta hússins, eru margir textanna skrifaðir af forsetanum sjálfum. „AFLEITT“ OG „EINHLIÐA“ SAMKOMULAG Barack Obama, sem var forseti frá 2009 til 2017, er sagður einn umdeildasti stjórnmálamaður í sögu Bandaríkjanna. Hann hafi samþykkt „afleitt“ kjarnorkusamkomulag við Íran og „einhliða“ Parísarsamkomulag um loftslagsmál -