Umboðsmaður Alþingis segir að frávísun úrskurðarnefndar velferðarmála á stjórnsýslukæru hafi ekki verið í samræmi við lög. Hann beinir því til nefndarinnar að taka mál kærenda upp að nýju, komi fram ósk um það frá þeim, og leysa þá úr málinu í samræmi við þau sjónarmið sem rakin eru í álitinu.