Fjölskylda sem lenti í snjóflóðinu á Flateyri 1995 vill sams konar rannsókn og nýlega var kynnt um Súðavíkurflóðið. Nú séu liðin þrjátíu ár og ekki hægt að bíða mikið lengur.„Við bara skiljum í raun ekki af hverju það er ekki hægt að skoða okkar snjóflóð líka,“ segir Sóley Eiríksdóttir. Hún var ellefu ára þegar snjóflóð féll á Flateyri. Hún fannst í rústum húss fjölskyldunnar og var bjargað úr snjónum.Í viðtali við fréttastofu helgina eftir snjóflóðið sagðist Sóley strax hafa vitað hvað væri að gerast, enda hafði mikið verið fjallað um snjóflóðið í Súðavík.Það liðu níu mánuðir milli þessara mannskæðu flóða. Fjórtán létust í Súðavík og tuttugu á Flateyri.„Af hverju var ekki hættulínan færð neðar eftir snjóflóðið í Súðavík?“ spyr Sóley í dag. Hún veltir fyrir sér hvort leitað hafi verið allr