Hvalfjarðargöngum var lokað í morgun í stutta stund. Göngunum var lokað á meðan unnið var að viðgerð á hæðarslá. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var ekið á hæðarslánna um korter fyrir klukkan átta í gærkvöld.Göngunum var lokað rétt fyrir klukkan níu í morgun. Þau voru opnuð aftur um hálftíma síðar, að viðgerð lokinni.Mynd úr safni af nyrðri gangamunna Hvalfjarðarganga.Þórgunnur Oddsdóttir