Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ekkert vitað um upptök eldsins í Brimnesi

Eldur kviknaði í skemmu við bæinn Brimnes á Dalvík klukkan 18 á föstudagskvöld. Lokið var við að slökkva eldinn stuttu fyrir klukkan ellefu.„Við erum búin að komast fyrir allan eld niðri og náðum að verja hlöðuna en núna erum við með eld á milli klæðninga í þakinu,“ sagði Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri á Dalvík, við fréttastofu.Húsið var tómt þegar eldurinn kviknaði og ekki er enn vitað hver upptök hans voru. Tveir slökkviliðsbílar frá Dalvík og einn frá Akureyri voru sendir á vettvang auk sjúkrabíls.Miklar skemmdir urðu á skemmunni vegna eldsins og slökkvilið þurfti að rífa þakið af skemmunni. Hvorki fólk né skepnur slösuðust í eldinum.Fréttin hefur verið uppfærð.Slökkviliðsstjóri á Dalvík segir ganga ágætlega að slökkva eldinn í skemmunni við Brimnes. Tveir slökkviliðsbíla
Ekkert vitað um upptök eldsins í Brimnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta