Samfylkingin í Reykjavík stendur á krossgötum. Hún þarf að velja sér leiðtoga í höfuðborginni í fyrsta skipti í nærri tuttugu ár.Flokkurinn hefur á landsvísu mælst langstærsti stjórnmálaflokkurinn, Kristrún Frostadóttir er ótvíræður leiðtogi flokksins og það er henni kappsmál að flokkurinn haldi því flugi sem hann hefur verið á undir hennar forystu. Í síðasta þjóðarpúlsi Gallups sögðust um þrjátíu og fimm prósent höfuðborgarbúa kjósa Samfylkinguna ef sú óvísindalega leið er farin að taka meðaltal í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.Flokkurinn mælist reyndar með nærri fjörutíu prósent fylgi í heimavígi formannsins, Reykjavík norður. Í nýrri könnun Maskínu fyrir sveitastjórnarkosningarnar mældist flokkurinn hins vegar með 25 prósent fylgi en Sjálfstæðisflokkur 31 prósent.En Kristrún vill að flo