Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, eru sammála um að samgönguáætlun sé ekki tilbúin til að koma fyrir þingið.„Við skorum á ríkisstjórnina að setja hana á ís, leggjast yfir hana og koma með hana aftur eftir áramót þegar það er búið að vinna hana betur,“ segir Jens Garðar Helgason.Sigmundur tekur undir og bætir við: „Þá er grundvallaratriði að mínu mati, og ég hugsa að Jens sé sammála mér, að menn slái ekki ryki í augun á fólki til dæmis með því að láta allt snúast um að það sé einhver ágreiningur á Austurlandi. Því niðurstaðan þarna var sú að það ætti bara að sniðganga Austurland.“Viðtalið við Sigmund Davíð og Jens Garðar má sjá í spilaranum hér að neðan.Fulltrúar stjórnarandstöðunnar kalla eftir því að samgönguáæ