Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áformum um fjölgun í þýska hernum mótmælt

Þýska þingið samþykkti í dag áætlun um að fjölga í hernum á næsta áratug úr 180.000 í 260.000. Áætlunin felur ekki í sér herskyldu. Hugmyndin er að hækka greiðslur til þeirra sem skrá sig í herinn, bæta þjálfun og auka sveigjanleika á tíma sem fólk getur þjónað. Beri þetta ekki tilætlaðan árangur ætlar þing Þýskalands að ræða þann möguleika að grípa til herkvaðningar.Þessum fyrirætlunum stjórnvalda var mótmælt víða um Þýskaland í dag. „Kröfurnar eru: engin herþjónusta, engin herskylda eða önnur þegnskylda,“ sagði einn skipuleggjenda mótmælanna í dag. „Við viljum ekki að fólk á okkar aldri sé sett á varaliðslista og það endi svo í skotgröfunum,“ sagði einn mótmælendanna í Hamborg.
Áformum um fjölgun í þýska hernum mótmælt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta