Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjá enn aukningu í ópíóíðafíkn og kalla eftir aðgerðum

Matthildarsamtökin sinna skaðaminnkandi þjónustu, bæði fyrir fólk með alvarlegan vímuefnavanda en einnig í skemmtanalífinu. Starfsfólk samtakanna hefur því góða innsýn í hvaða efni eru í umferð hverju sinni.Svala Jóhannesdóttir, formaður samtakanna, segir nokkra breytingu hafa orðið á fíkniefnamarkaði á þessu ári og fleiri sem sæki þjónustuna glími við ópíóíðavanda.„Það er nýtt fólk að koma í fyrsta skipti sem er bara nýbyrjað að reykja Oxycontin dagsdaglega. Það er náttúrlega verulegt áhyggjuefni að þessi vandi virðist enn vera að aukast á Íslandi,“ segir Svala.„Við sjáum líka nýtt efni sem í okkar þjónustu, methedrone, sem er í rauninni nýmyndaður örvandi vímugjafi sem hefur verið líkt við blöndu af kókaíni, amfetamíni og mdma og það er aðallega verið að nota það í skemmtanalífinu. Síðan
Sjá enn aukningu í ópíóíðafíkn og kalla eftir aðgerðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta