Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Veiðigjöld á makríl og þorski hækka mest

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt auglýsingu um veiðigjald 2026. Þar hækkar veiðigjald á makríl mest, um tæplega sextán krónur á kílóið á milli ára. Þorskur hækkar næst mest, um rúmlega 22 krónur á kílóið á milli ára.Veiðigjaldið gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember og er gjald í krónum á hvert kíló óslægðs afla. Veiðigjald á markíl er núna 10,43 krónur á kílóið en með hækkuninni verður það 26,17 krónur á kílóið. Veiðigjald á þorski er núna 28,68 krónur á kílóið en hækkar upp í 50,79 krónur.Veiðigjald á öðrum fisktegundum eins og löngu, keilu, steinbít, hlýra og síld lækkar en veiðigjald á ýsu, ufsa, þykkvalúru/sólkola og grásleppu hækkar.Veiðigjald fyrir langreyðar hækkar úr tæplega 74 þúsund krónum upp í tæplega 77 þúsund krónur, gjald á hrefnu hækkar úr 11.797 krónum í 12.305 krónu
Veiðigjöld á makríl og þorski hækka mest

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta