Svo virðist sem fokið hafi í Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, á þingfundi í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar stigu í stríðum straumi í ræðustól til þess að gagnrýna Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra og samgönguáætlun hans, undir liðnum fundarstjórn forseta. „Ég er komin með nóg. Djöfulsins, helvítis, andskotans,“ heyrðist Þórunn segja eftir að hafa gert tíu mínútna hlé á þingfundi.