41 prósent Íslendinga vilja breyta klukkunni og færa hana aftur um eina klukkustund, þannig að það verði bjart fyrr um morguninn en myrkur síðdegis. Skiptar skoðanir eru þó um hvort breyta eigi klukkunni því 33 prósent eru andvíg því en 26 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg því. Þetta kemur fram í nýrri könnun Prósents.Prósent framkvæmdi könnunina frá 18. nóvember til 2. desember. Þátttakendur voru spurðir hvort þeir væru hlynntir eða andvígir því að færa klukkuna aftur um eina klukkustund. Það myndi þýða að bjart yrði fyrr á morgnana en myrkur síðdegis. 41 prósent eru hlynnt því að klukkan verði færð aftur um eina klukkustund, 33 prósent eru andvíg og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg.Ekki er marktækur munur á viðhorfi eftir kyni, búsetu, hjúskaparstöðu eða fjölda barna á heimili en töl