Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hofsjökull fer minnkandi: Hefur rýrnað um tvö prósent frá því í fyrra

Hofsjökull hefur rýrnað um tvö prósent frá því í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum mælingum Veðurstofu Íslands. Þetta er önnur mesta rýrnun jökulsins frá upphafi mælinga. 17% RÝRNUN Á 38 ÁRUM Rúmmál jökulsins hefur rýrnað um rúmlega sautján prósent frá árinu 1987 þegar mælingar hófust, úr um 200 rúmkílómetrum í tæplega 165. Þá hefur flatarmál jökulsins dregist saman um fimmtán prósent á síðustu 38 árum og er nú komið niður fyrir 790 rúmkílómetra.Þrír starfsmenn Veðurstofu Íslands fóru á Hofsjökul um miðjan nóvember til að mæla sumarleysingu. Þar eru tuttugu stikur víðs vegar um jökulinn sem mæla hve mikið hann hefur bráðnað í sumar. Þessar mælingar eru gerðar til þess að finna út ársafkomu jökulsins, það er, hvort hann hafi rýrnað eða bætt á sig. Fært var í nítján af tuttugu leysingastiku
Hofsjökull fer minnkandi: Hefur rýrnað um tvö prósent frá því í fyrra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta