Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Á­kvörðun um fjár­hæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venju­lega

Fjárhæð veiðigjalds næsta árs liggur nú fyrir en eru upplýsingarnar seinni á ferðinni en venjulega. Gert er ráð fyrir að tekjur af veiðigjaldi næsta árs verði um fimmtán milljarðar. Lög gera ráð fyrir að ríkisskattstjóri geri tillögu um fjárhæð gjaldsins til ráðherra eigi síðar en 1. desember ár hvert, en enn sem komið er hafa ekki fengist svör frá stjórnvöldum um hvers vegna auglýsing um fjárhæð gjaldsins er seinni á ferðinni í ár en venjulega. Sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga að greiða gjaldið voru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga á næsta ári.
Á­kvörðun um fjár­hæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venju­lega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta