Sjónvarpið hóf útsendingar 30. september 1966. Flestir kannast við klukkuna sem telur niður í fréttatímann, sem hefur haldist í gegnum áratugina en breyst úr venjulegri klukku með vísum yfir í stafræna klukku.Fyrsta stefið var í innlendum fréttaþætti, sem var í sjónvarpinu frá því að útsendingar hófust þar til daglegur fréttaflutningur byrjaði um áramótin 1966-67.Fyrst voru einungis útsendingar tvisvar í viku áður en þeim var fjölgað í sex daga. Sömuleiðis voru engar útsendingar í júní. Fimmtudagar voru sjónvarpslausir dagar þar til Stöð 2 hóf útsendingar árið 1986.Hér má sjá hvernig fréttastef og fréttainngangur RÚV hefur breyst í gegnum árin. Nýtt útlit sjónvarpsfrétta verður frumsýnt í kvöld og má sjá það í lok myndbandsins.