Þorleifur Stefán Bernharðsson lést nýlega eftir baráttu við fíknisjúkdóm á nítjánda ári.Jóhannes Bjarni Eðvarðsson, föðurbróðir Þorleifs, deildi harkalega á kerfin í málefnum barna með fjölþættan vanda í minningargrein, og svo í sjónvarpsfréttum. Hér má sjá viðtalið við Jóhannes í heild.Hann minnist til dæmis á að þegar unglingar verða átján ára færist þeir milli kerfa. Kerfið hafi svo brugðist Þorleifi, sem hafði þó átt sterkt bakland og var að reyna að komast úr neyslu.Úrræðin sem honum buðust hafi ekki hentað 18 ára börnum.„Þó þau séu orðin, samkvæmt lögum, fullorðin þá eru þetta samt börn. Þorleifur Stefán náði að verða fullorðinn, samkvæmt lögum, í átta mánuði.“Hann útskrifaði sig sjálfur af fíknigeðdeild og fannst látinn innan sólarhrings.