Fyrir suma er það órjúfanlegur hluti af jólunum að horfa á jóladagatalið á RÚV. Fréttastofa ræddi við krakka í 8.-10. bekk Garðaskóla, sem voru langflest sammála um að vilja fá Jól í Snædal aftur á skjáinn.„Okkur þykir alltaf vænt um að fá beiðnir frá fólki um efni og við reynum að koma til móts við það eftir bestu getu. Í þessu tilviki er það því miður ekki hægt,“ segir Eva Georgsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.Sams konar umræða hefur sprottið upp áður varðandi gömul jóladagatöl. En hvers vegna sækist fólk eftir því að sjá gamalt efni fyrir jólin? „Yfirleitt tengist þetta jákvæðum minningum. Ef að þér leið vel þegar þú varst að horfa á skemmtilegt jóladagatal sem barn, þá langar þig að sækjast aftur í þá tilfinningu,“ segir Guðný B. Barkardóttir, sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni.