Innflytjendur á Íslandi hafa vilja og áhuga til að læra íslensku en framboð er ónægilegt og skortur er á umgjörð um málaflokkinn. Þetta segir Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur fræðslu og inngildingar hjá Alþýðusambandi Íslands.Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir okkur hafa staðið okkur hræðilega illa hvað varðar framboð á íslenskukennslu fyrir aðflutta. Ríkisstjórnin sé ákveðin í að ráðast í úrbætur á stöðunni.Innflytjendur voru hátt í 70 þúsund um síðustu áramót eða rúm 18% landsmanna. Atvinnuþátttaka innflytjenda á Íslandi er sú mesta innan OECD-ríkjanna en þó eru innflytjendur hvergi ólíklegri til að tala heimamálið en á Íslandi.Aleksandra var gestur í Kastljósi í kvöld ásamt Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt í íslensku fyrir erlenda nemendur við Háskóla Íslands. Þau ræd