Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun um friðaráætlun Donalds Trump Bandaríkjaforseta fyrir Gaza. Þar er lagt til að stofnað verði sérstakt friðarráð sem eigi að fara með stjórn Gaza til loka ársins 2027. Þá verði einnig stofnað alþjóðlegt öryggislið til að tryggja stöðugleika á Gaza.13 ríki studdu ályktunina en Rússar og Kínverjar sátu hjá.Ólíkt fyrri ályktunum er minnst á framtíðarríki Palestínumanna sem ísraelskir ráðherrar hafa lýst mikilli andstöðu við. Þjóðaröryggisráðgjafi Ísraels sagði til að mynda í dag að ef ályktunin yrði samþykkt ætti Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels að láta handtaka Mahmoud Abbas forseta Palestínustjórnarinnar.Hamas-samtökin sendu frá sér yfirlýsingu eftir atkvæðagreiðsluna og höfnuðu stofnun alþjóðlegs öryggisliðs á Gaza. Þau sögð