Færri leita húsaskjóls í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar en áður og gistnóttum hefur einnig fækkað. Um fjórðungur er með lögheimili utan Reykjavíkur.Reykjavíkurborg rekur gistiskýli og búsetuúrræði fyrir heimilislausa á nokkrum stöðum í borginni. Margir þeirra sem þurfa á þjónustu að halda glíma við fíkn og geðrænan vanda. Karlmenn eru í miklum meirihluta.„Heimilisleysi kvenna hefur annars konar birtingarmynd. Við þurfum að vera meðvituð um það. Konur fá frekar gistingu hjá öðrum heldur en karlar og dvelja þar í ótryggum aðstæðum. En það eru mun fleiri karlmenn en konur sem sækja í neyðarskýli hjá okkur,“ segir Soffía Hjördís Ólafsdóttir deildarstjóri í málefnum hemilislausra hjá Reykjavíkurborg.Stefna í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir var samþykkt í borgarráði