Shabana Mahmoud, innanríkisráðherra Bretlands, kynnti síðdegis nýja og herta stefnu í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þó gæti reynst erfitt að fá hana samþykkta í þinginu vegna andstöðu innan stjórnarflokksins.Mahmoud segir þetta yfirgripsmiklar breytingar í málefnum umsækjenda um vernd. Stefnan byggir á innflytjendastefnu Danmerkur sem er ein sú harðasta í Evrópu.Mahmoud segir að með þessu verði lögum og reglu komið á landamærin að nýju. Aldrei hafa fleiri sótt um vernd á Bretlandseyjum, í júní voru umsóknirnar orðnar 111 þúsund og markmiðið er að fækka þeim umtalsvert.Stjórnvöld í Bretlandi kynntu herta stefnu í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd í dag. Þau sem fá vernd gætu þurft að bíða í 20 ár eftir varanlegri búsetu verði hún samþykkt í þinginu.Meðal breytinga er að í s