Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Atvinnulausir fá desemberuppbót

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherraRÚV / SkjáskotInga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem verður greidd fyrir 15. desember.Þau sem staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 30. desember og hafa verið tryggð að fullu innan atvinnuleysistryggingakerfisins í samtals tíu mánuði eða lengur eiga rétt á fullri desemberuppbót. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Hjá þeim sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast greiðslan í hlutfalli við rétt til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið atvinnuleysisbætur.
Atvinnulausir fá desemberuppbót

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta