Stjórnvöld í Póllandi telja öruggt að skemmdarverk hafi verið unnið á lestarteinum á leið sem er mikilvæg fyrir flutning gagna til Úkraínu. Annað tilvik er til rannsóknar og afar líklegt að það hafi einnig verið skemmdarverk.Þetta kom fram á blaðamannafundi í Varsjá sem ríkisstjórn Póllands boðaði til í dag. Tilkynnt var um fyrra atvikið í gærmorgun, skemmdir á lestarteinum vegna sprengingar.Pólsk stjórnvöld telja öruggt að lestarteinar hafi verið sprengdir viljandi, á leið sem er mikilvæg fyrir flutning til Úkraínu. Annað tilvik er til rannsóknar þar sem er grunur um skemmdarverk.Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir engan vafa á því að þetta sé skemmdarverk. Hann telur að ætlunin hafi verið að sprengja lest í loft upp.Teinarnir tengja höfuðborgina Varsjá við borgina Lublin og lei