Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vegagerðin býður út Fljótagöng

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboði í for- og verkhönnun Fljótaganga, sem eiga að koma í stað Strákaganga og vegar um Almenninga. Göngin eiga að liggja milli Nautadals í Fljótum og Hólsdals. Innifalið í verkefninu er til að mynda hönnun jarðganganna, vega og tveggja brúa.Verkið felst í for- og verkhönnun á Siglufjarðarvegi milli Stafár í Fljótum og að tengingu við núverandi Siglufjarðarveg í botni Siglufjarðar. Með framkvæmdinni styttist leiðin milli Fljóta og Ólafsfjarðar um um það bil fjórtán kílómetra og leiðin milli Fljóta og Siglufjarðar um tíu kílómetra. Frestur til að skila inn tilboðum er til 16. desember.Myndin er af Siglufjarðarvegi. Loftmynd tekin af hlíðinni við Strákagöng.RÚV / Andrea María Sveinsdóttir
Vegagerðin býður út Fljótagöng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta