Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins, og Nadine Guðrún Yaghi, fyrrverandi upplýsingafulltrúi PLAY, gagnrýna sinn fyrrverandi vinnustað, Vísi, vegna birtingar af mynd af Snorra og tveggja ára syni þeirra á landsþingi Miðflokksins.Myndin var höfð með fyrirsögninni „Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu“ en í fréttinni er fjallað um hugmyndir Snorra um áhrif fjölgunar innflytjenda á Íslandi. Nadine Guðrún óskaði eftir því við Vísi að myndinni yrði skipt út fyrir aðra en fréttastofa Vísis hafnaði því í fyrstu. Var það rökstutt með því að Snorri hefði áður sjálfur birt myndina.Vísir hefur síðan þá tekið myndina úr birtingu. FRÉTT UM ÁHRIFAMIKLA SAMSÆRISKENNINGU Í frétt Vísis er meðal annars vikið að kenningunni um „útskiptin miklu“ (e. Great Replacement Theory). Þar e