Arion banki býður viðskiptavinum sínum upp á tvenns konar fasteignalán eftir að hafa endurskoðað skilmála lánanna. Það var gert vegna þeirrar óvissu sem skapaðist á fasteignamarkaði í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða gegn Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.Eftir breytinguna verður í boði að taka óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára. Lánstíminn verður allt að 40 ár. Í tilkynningunni segir að á þriðja ári fastvaxtatímabilsins og út lánstímann verði hægt að óska eftir endurfjármögnun án uppgreiðslugjalds. Viðskiptavinir geta þá valið á milli þeirra lánakosta sem í boði verða á þeim tíma.Verði lánið ekki endurfjármagnað fyrir lok tímabilsins taka við breytilegir vextir bankans sem verða í boði á þeim tíma.Bankinn býður einnig upp á