Snjóflóð í Dólómítafjöllum á Ítalíu hefur kostað fimm þýska fjallgöngumenn lífið, þar á meðal 17 ára stúlku og föður hennar.Öll voru þau að klífa Cima Vertana í Ortler-Ölpunum þegar snjóflóðið féll um klukkan 16 að staðartíma í gær. Björgunarsveitir fundu lík feðginanna í dag og sögðu ljóst að snjóflóðið hefði kaffært þau og borið þau með sér niður hlíðina.Björgunarsveitir fundu lík þremenninganna, sem voru að ferðast saman, í gær en gera þurfti hlé á leitaraðgerðum vegna þoku og lélegs skyggnis.Tveir fjallgöngumenn á svipuðum slóðum sluppu lifandi frá snjóflóðinu og gerðu björgunarsveitum viðvart.AP/Third Party / Corpo Nazionale Soccorso Alpino e Speleologico