Sauðfjárbændur eru upp til hópa mjög dramatískir, á jákvæðan hátt, og eðlilega með sterkar skoðanir á kindum, til dæmis hvort kollótt fé sé betra eða fegurra en hyrnt. Auðvitað er stundum metingur á milli bænda þegar kemur að kindum, en það er mismunandi eftir landsvæðum.