Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bæta þurfi lánakjör fyrstu kaupenda og tekjulágra

Ólíklegt er að aðgerðir Seðlabankans bæti lánakjör fyrstu kaupenda og tekjulágra, segir hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Kjör þeirra hafi versnað umfram annarra fasteignakaupenda.Seðlabankastjóri sagði á föstudag að bankinn hefði rýmkað lántakaskilyrði til að bregðast við frosti á fasteignamarkaði. Framvegis mega fyrstu kaupendur taka allt að 90% lán, í stað 85% áður. Þá hefði svigrúm bankanna til þess að veita undanþágur á greiðslubyrðarreglum verið rýmkað.„Þessi áhrif sem þessi yfirlýsing getur haft. Við höldum að þau verði frekar lítil. En þetta sendir ákveðin skilaboð inn í bankakerfið um að Seðlabankinn sé að fylgjast með stöðu fyrstu kaupenda og tekjulágra og hafi áhyggjur af henni og við deilum þeim áhyggjum,“ segir Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- o
Bæta þurfi lánakjör fyrstu kaupenda og tekjulágra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta