Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flotaforingi ei meir

Enn syrtir í álinn fyrir Andrew Mountbatten Windsor, fyrrverandi Bretaprins. Í morgun var greint frá því að til stæði að svipta hann sjóliðsforingjanafnbót sem hann hefur borið í heiðursskyni síðan 2015.John Healey varnarmálaráðherra Bretlands segir við BBC að stjórnvöld séu eingöngu að fylgja fordæmi konungshallarinnar og að úr því að konungurinn ákvað að svipta bróður sinn tign og titlum í vikunni þá sé þetta rökrétt skref.Um helgina var hulunni svipt af tölvupósti sem Andrew sendi vini sínum, barnaníðingnum Jeffrey Epstein, um það leyti sem sá síðarnefndi losnaði úr fangelsi í New York árið 2010, þar sem hann hafði afplánað dóm fyrir kaup á vændi af barnungri stúlku. Í póstinum segist Andrew gjarnan vilja koma til New York og hitta Epstein.
Flotaforingi ei meir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta