Bogi Ágústsson hlaut heiðursverðlaun Íslensku sjónvarpsverðlaunanna í kvöld, þau fyrstu af sinni gerð. Hann er sagður blaða- og fréttamaður af guðs náð og hefur starfað við fagið hátt í 50 ár.Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttakona og samstarfsfélagi Boga til margra ára skrifaði honum kveðju sem flutt var á verðlaunaathöfninni:„Bogi Ágústsson er blaða- og fréttamaður af guðs náð. Hann hefur starfað við fagið í hátt í fimmtíu ár. Hann reyndi örfáum sinnum að skipta um starfsvettvang en alltaf togaði fréttamennskan og sjónvarpið, sem betur fer fyrir okkur hin.Bogi las sagnfræði í Háskóla Íslands og hefur alla tíð haf brennandi áhuga á sögunni. Sögum af fólki, sögum af atburðum, sögum af stjórnmálum og ekki síst sögum af sögunni. Hann er sögumaður sem hefur þann stóra kost að aðrir hlusta þega