Margar vefsíður, smáforrit og önnur þjónusta tengd netinu liggja niðri víðs vegar um heiminn vegna bilana í netþjónustu Amazon. Netþjónusta Amazon AWS (Amazon Web Services) tilkynnti í morgun að villuboðum hefði fjölgað mikið og að notendur á austurströnd Bandaríkjanna væru aðallega að verða fyrir áhrifum vegna þessa. Afar mörg fyrirtæki reiða sig á netþjónustu Amazon en sjá má lista yfir þau fyrirtæki sem hafa orðið fyrir áhrifum hér. Taka skal fram að vefsíðan er á ensku. Flestar þjónusturnar virka enn þá á Íslandi en mögulegt er að áhrifin gætu haft áhrif á þjónustu hér á landi. Mögulegt er að notendur vefs RÚV gætu orðið fyrir áhrifum vegna þessa. Fréttin verður uppfærð