Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Landsréttur mildaði dóm yfir Sívarsbróður

Kristján Markús Sívarsson, annar Sívarsbræðra svokallaðra, var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Landsrétti fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gegn konu árið 2022 á heimili hans.Landsréttur mildaði þannig 16 mánaða fangelsisdóm sem Kristján hlaut í héraði fyrir tæpu ári síðan, í þremur ákæruliðum. Konan lýsti því að Kristján hefði hent hlut í höfuð hennar með þeim afleiðingum að úr blæddi, hana svimaði og hún féll í gólfið. HÖFUÐKÚPUBROT OG MAR Á HEILA Konan var stödd á heimili Kristjáns ásamt þáverandi kærasta sínum er árásin átti sér stað. Á heimilinu var einnig þáverandi kærasta Kristjáns en hún kveðst ekki muna eftir árásinni. Hún var flutt á bráðamóttöku í kjölfar árásarinnar þar sem kom í ljós að hún hafði hlotið sár á höfði, höfuðkúpubrot og mar á heila. Kristján neitaði sök
Landsréttur mildaði dóm yfir Sívarsbróður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta