Hvalfjarðargöngunum var lokað á tólfa tímanum til þess að hægt yrði að gera við skemmdir á hæðarslá. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni rakst bíll í hæðarslána og er almennt reynt að gera við slíkar skemmdir sem fyrst til að forðast frekara tjón eða mjögulega hættu.Áreksturinn var ekki mikill og engin hætta skapaðist, að sögn Vegagerðarinnar. Ekki sé algengt að slíkt gerist en hins vegar hafi færst í aukana síðastliðið hálft ár að ökumenn virði ekki merkingar um hámarkshæð ökutækja í Hvalfjarðagöngum.Búið er að opna göngin á ný.Mynd er úr safni.RÚV