„Nei, þetta kom okkur mjög á óvart. Þetta var ekkert inni í okkar áætlunum,“ segir Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu. Gjaldþrot flugfélagsins Play kom honum í opna skjöldu. Birta tapar um 1700 milljónum króna á gjaldþrotinu. > Ef það verður til þess að fá þessa peninga til baka þá viljum við það. Fáir bjuggust við því að félagið yrði gjaldþrota svona fljótt eftir 2,8 milljarða króna fjármögnun í skuldabréfaútboði í lok ágúst. Birta var stærsti einstaki hluthafinn í Play með rúmlega tíu prósenta eignarhlut.Fjallað er um gjaldþrot Play í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér:Lífeyrissjóðurinn Birta er einn fjögurra lífeyrissjóða í hópi 20 stærstu hluthafa Play. Gjaldþrotið kom framkvæmdastjóranum á óvart. Birta er einn af eigendum skuldabréfs sem er með v