Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til tíu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás sem hann framdi á Akureyri í fyrra, þegar hann var aðeins sautján ára. Hann stakk mann ítrekað og ákæruvaldið fór fram á að hann yrði dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Héraðsdómur taldi ásetning hans til manndráps ekki sannaðan .