Ingvar Þóroddsson, oddviti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi og 2. varaforseti þingsins, er farinn í leyfi frá þingstörfum í annað sinn.Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, greindi frá þessu við upphaf þingfundar í dag.Ingvar var kjörinn á þing í kosningunum í nóvember og er yngsti þingmaðurinn á Alþingi. Hann fór í leyfi frá þingstörfum í maí og greindi frá því í yfirlýsingu að hann ætlaði í áfengismeðferð.Hann sneri aftur á þing þegar þingið kom saman í síðustu viku en er nú, sem fyrr segir, farinn í leyfi.