Tíðrætt er um það hvað það sé erfitt fyrir ungt fólk að komast inn á fasteignamarkaðinn í dag. Ungt fólk hefur alla jafna minna fé á milli handanna en aðrir – er enn eða nýbúið í námi, oft að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og með takmarkaðan sparnað. Á síðustu árum hefur þó róðurinn þyngst allverulega fyrir þennan hóp...