„Við erum komin svo langt, langt upp fyrir greiðslugetu venjulegs launafólks með íbúðir að annaðhvort verður að gefa íbúðaverð eftir eða það stendur í stað á meðan verið er að fylla upp í það gat sem vantar á markaðinn. Þessar íbúðir eru þess eðlis að unga fólkið, sem mest þarf á þessu að halda, er ekki að ráða við þetta vegna þess að það kemst ekki í gegnum greiðslumat. Á meðan standa þessar íbúðir bara óseldar.“Þetta segir Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Hann var gestur í Speglinum í kvöld en þar ræddi Anna Kristín Jónsdóttir við hann um spennu á vinnumarkaði og stöðu fasteignamarkaðarins.Stýrivaxtaákvörðun er væntanleg á morgun en ekki eru taldar miklar líkur á að vaxtastigi verði breytt þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir ákvörðun sína.Atvinnuleysi va