Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Opna 64 ný hjúkrunarrými í Kópavogi

Nýtt hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi er tilbúið og móttaka íbúa hafin. Biðlisti eftir hjúkrunarrými hefur tæplega tvöfaldast á síðustu fimm árum og hefur aldrei verið lengri.Formleg opnun hjúkrunarheimilisins í Boðaþingi verður í september þegar íbúar eru fluttir inn. Að sögn verkefnastjóra fara næstu vikur í flutninga og aðlögun íbúa og starfsfólks. Fyrri áfangi hjúkrunarheimilisins með 44 rýmum var tekinn í notkun árið 2010.Með nýja áfanganum bætast við 64 rými og verða þau því alls 108 talsins. Nýja hjúkrunarheimilið tengist þjónustumiðstöð, núverandi hjúkrunarheimili og leiguíbúðum aldraðra við Boðaþing og innangengt verður á milli bygginga.Hrafnista hefur séð um að reka heimilið frá upphafi og annast líka nýja áfangann. Ekki liggur fyrir hvernig samsetning íbúa verður, en fyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta